Fyrir mér eru jólin tími til að njóta með fjölskyldunni, borða góðan mat og gleðja þá sem þér þykir vænt um. Jákvæður hugsunarháttur, gott viðmót og fallegar kveðjur mæta manni hvert sem maður fer í desembermánuði. Þrátt fyrir að vera ekki trúuð þá hef ég og mun alltaf elska jólin, þau gefa okkur eitthvað til að hlakka til og hvetja okkur áfram í gegnum veturinn. Gleðin og hátíðarandinn lyftir okkur upp í skammdegisþunglyndinu og myrkrinu. Við fáum hvíld, borðum yfir okkur, kúrum yfir óteljandi bíomyndum, förum í göngutúra í snjónum og auðvitað borðum svo meira.